Böðvar Guðlaugsson (14. febrúar 1922 – 16. ágúst 2007) var íslenskur rithöfundur, ljóðskáld og kennari. Hann var einn af þeim fyrstu á Íslandi til að ljúka sérkennslunámi. Ljóð hans hafa birst víða og orti hann meðal annars í Spegilinn. Hann samdi textann við Kópavogsbrag, lag sem Ríó tríó flutti. Einnig samdi hann limru: Þótt veraldargengið sé valt og úti andskoti kalt með góðri kellingu og gengisfellingu bjargast yfirleitt allt.