ArtistInfo Logo  ArtistInfo

Artist Portrait

Eythor Arnalds

Band, GB

A.k.a. Eyþór Arnalds

Eyþór Arnalds: Fæddur: 24.Nov 1964 Eyþór fæddist í Reykjavík og ólst upp í Árbæjarhverfi til 1976 og síðan í Vestmannaeyjum. Hann var í Árbæjarskóla og Hagaskóla, stundaði nám við MH og lauk þaðan stúdentsprófi 1984. Eyþór byrjaði að læra á blokkflautu fimm ára hjá einkakennara, lærði á fiðlu við Tónskóla Sigursveins frá sex ára aldri, lærði á trompet frá níu ára aldri, lærði síðan á selló hjá Gunnari Kvaran frá 16 ára aldri og lauk burtfararprófi í sellóleik 1988 og lokaprófi í tónsmíðum frá Tónlistarskólanum í Reykjavík 1988 en lokaverkefni hans var flutt af Sinfóníuhljómsveit Íslands. Eyþór var í lögfræði við HÍ um skeið, lauk MBA-prófi frá HR og hefur stundað nám við stjórnendaskóla Harvard Business School. Eyþór söng með hljómsveitinni Tappi Tíkarrass 1978-81 ásamt með Björk Guðmundsdóttur, Eyjólfi Jóhannessyni og Jakobi Smára Magnússyni meðal annars í kvikmyndinni Rokk í Reykjavík, lék með hljómsveitinni Todmobile 1989-93 ásamt Þorvaldi B. Þorvaldssyni og Andreu Gylfadóttur. Hljómsveitin kom með nýjan tón í innlendri popptónlist þess tíma, var afar vinsæl, kom fram víða um land og sendi frá sér fjórar hljómplötur. Hún kom aftur saman árið 2003, ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands. Eyþór samdi mörg lög á þessum árum og stjórnaði upptökum á hljómplötum ýmissa listamanna. Morgunblaðið 24. nóvember 2014, bls. 22-23.

     
External Links
Discogs Logo Discogs
ArtistInfo App
ArtistInfo for iOS and ArtistInfo for Mac are presenting musicians, composers and producers that are envolved in the musical work that you are listening to in Apple Music, iTunes, or Spotify. Discover new music via the network among artists. Manage your favorite musicians and albums via iCloud and share recommendations with your friends via email, AirDrop, or Social Media.

App Store Logo     Mac App Store Logo

Acknowledgements
To all the music fans that are contributing on Discogs, MusicBrainz and Wikipedia. Thanks to Franz Flückiger for providing Storygram used to visualize band membership.
ArtistInfo for Mac, iPad, and iPhone
ArtistInfo App
Universal Link: https://music.metason.net/artistinfo?name=Eythor%20Arnalds
ArtistInfo Community
Most seen topics within ArtistInfo:

Top 10 Artists    Top 20 Albums
 
What others are currently looking for:

Recent Artists    Recent Albums

ArtistInfo Logo ArtistInfo by Metason © 2015-2020 Metason Logo