Band,
Rock and Pop
Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar. Geirmundur stofnaði síðan eigin hljómsveit 1971, Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar, sem hann hefur starfrækt og verið hljómsveitarstjóri fyrir allar götur síðan. Hljómsveitin lék fyrst mikið á sveitaböllum á Norðurlandi og Austurlandi. Árið 1972 söng Geirmundur eigin lög inn á tvær tveggja laga plötur sem Tónaútgáfan á Akureyri gaf út. Á þessum plötum voru lögin Bíddu við, og Nú er ég léttur, en hljómsveitin Trúbrot annaðist undirleik: „Þessi lög slógu svo rækilega í gegn að hljómsveitin fór að spila um allt land. Þá varð ekki aftur snúið. Við höfðum þá meira en nóg að gera, hvort heldur sem var á sveitaböllum, í Reykjavík eða á öðrum þéttbýlisstöðum.“ Hljómsveit Geirmundar hefur síðan leikið fyrir dansi og er enn að. Þá hefur hljómsveitin leikið á Kringlukránni frá 2003.
Geirmundur Valtýsson acc |
Title | Artist | Year | Type |
---|---|---|---|
Laugardagskvöld | Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar | 1985 | Album |
Sumarfrí | Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar | 1981 | Single |