Band,
Pop
A.k.a. Ingibjörg Kristín Þorbergsdóttir
Ingibjörg Kristín Þorbergsdóttir. Icelandic. Ingibjörg Þorbergs (25.10.1927) er án nokkurs vafa eitt af stóru nöfnunum í íslenskri tónlistarsögu, hún hefur sungið og samið fjölda þekktra laga og texta sem komið hafa út á ótal plötum, hún hefur átt þátt í að móta íslenskt útvarp með tilliti til barnaefnis og ekki hvað síst í að varða leið kvenna í íslenskri tónlist með framlagi sínu. Ingibjörg Kristín Þorbergsdóttir fæddist í Reykjavík haustið 1927 og snemma varð ljóst að tónlistin var henni í blóð borin, hún var af tónelsku fólki komin og var aðeins níu ára gömul þegar hún samdi sitt fyrsta lag. Ingibjörg byrjaði snemma að syngja, var t.d. í Sólskinsdeildinni sem var barnakór og starfaði á fimmta áratug síðustu aldar. Hún söng einsöng í útvarpinu aðeins tólf ára gömul en þá var hún þegar farin að læra á hljóðfæri. Hún lærði bæði á gítar, orgel og píanó en lagði síðan stund á klarinettuleik og varð fyrst íslensk kvenna til að ljúka einleikaraprófi á blásturhljóðfæri, og reyndar fyrsti Íslendingurinn til að ljúka prófi á klarinettu. Aukinheldur lærði hún til tónmenntakennara.
![]() | K.K. Sextettinn |
Track list and 30sec audio provided by
Title | Artist | Year | Type |
---|---|---|---|
Man Ég Þinn Koss | Ingibjörg Þorbergs | 2007 | Compil. |
Barnalög | Ingibjörg Þorbergs Og Guðrún Guðmundsdóttir | 1969 | Single |
Klukknahljóð / Hin Fyrstu Jól | Ingibjörg Þorbergs | 1964 | Single |
Tondeleyo Og Fleiri Lög | Óðinn Valdimarsson og Atlantic Kvartettinn, Ingibjörg Þorbergs, Marz Bræður og Hljómsveit Jan Morávek, Sigurður Ólafsson og Sigurveig Hjaltested, Hljómsveit Carl Billich, Sigfús Halldórsson | 1960 | Single |
Syngur Fyrir Börnin | Ingibjörg Þorbergs | 1959 | Single |
Heillandi Vor / Bergjum Blikandi Vín | Ingibjörg Þorbergs | 1956 | Album |
Litli Skósmiðurinn / Í Dansi Með Þér | Ingibjörg Þorbergs | 1955 | Album |
Aravísur / Börnin Við Tjörnina | Ingibjörg Þorbergs | 1954 | Album |
Rósin Mín / Nú Ertu Þriggja Ára | Ingibjörg Þorbergs, Hljómsveit Carl Billich | 1954 | Album |
Trying / Oh, My Papa | Ingibjörg Þorbergs Með Hljómsveit Carl Billich | 1954 | Album |
Hin Fyrstu Jól / Klukknahljóð | Ingibjörg Þorbergs | 1954 | Album |
Harpan Ómar / Þórður Sjóari | Alfreð Clausen & Ingibjörg Þorbergs | 1954 | Album |
Móðir Mín / Pabbi Minn | Ingibjörg Þorbergs Með Hljómsveit Carl Billich | 1954 | Album |
Nótt / All Of Me | Ingibjörg Þorbergs, Ragnar Bjarnason Með K.K. Sextettinn | 1954 | Album |
Þín Hvíta Mynd / Ég Vildi' Að Ung Ég Væri Rós | Alfreð Clausen, Ingibjörg Þorbergs | 1954 | Album |
Bangsimon Lög / Litli Vin | Ingibjörg Þorbergs | 1953 | Album |
Stefnumótið / Á Morgun | Ingibjörg Þorbergs & Alfreð Clausen Með Tríó Carl Billich | 1953 | Album |
Hríslan Og Lækurinn / Játning | Ingibjörg Þorbergs Og Smárakvartettinn Í Reykjavík Með Carl Billich | 1953 | Album |