voc,
Pop
Jón Thor er fæddur og uppalinn í Hafnarfirði. Á yngri árum átti tónlistin hug hans allan og myndaði hann m.a. dúettinn Fjörefni ásamt Páli Pálssyni rithöfundi. Frá því 1977 stundaði Jón Thor nám við Myndlista- og handíðaskóla íslands og útskrifaðist úr málaradeíld 1982. Að loknu því námi stundaði Jón Thor myndlistina og tónlistina jöfnum höndum, hélt einkasýningar í Reykjavík og Hafnarfirði og söng með ýmsum hljómsveitum. Af þeim er helst að nefna sveitirnar Bogart og DADA.