Kómedíuleikhúsið á Ísafirði hefur stofnað hljóðbókaklúbbinn „Hljóðbókaklúbburinn þinn“ þar sem klúbbfélagar fá hljóðbækur Kómedíuleikhússins í áskrift. Góðra hluta er að vænta frá Kómedíuleikhúsinu því bækurnar sem koma út á næsta ári eru: Dracula - Makt myrkranna eftir Bram Stoker, Skrýmslasögur sem er úrval sagna úr Þjóðsagnasafni þjóðarinnar, Piltur og stúlka eftir Jón Thoroddsen og síðan Álfa- og jólasögur sem er úrval sagna úr Þjóðsagnasafni þjóðarinnar.