ArtistInfo Logo  ArtistInfo

Album Cover
Magnús Þór Sigmundsson
Hljóð Er Nóttin

Album IS 2005 on Steinsnar label
Pop, Folk, World and (Vocal)

The album Hljóð er nóttin with Magnús Þór Sigmundsson. The album was released in 2005 by Steinsnar. Geisladiskur Magnúsar Þórs Sigmundssonar. Lögin eru öll eftir Magnús Þór en textarnir eru eftir Magnús Þór, Vilhjálm Vilhjálmsson, H.V., Sigurð Nordal, Michael Dennis, Stefán Hilmarsson, Barry Rolfe og Margréti Jónasdóttur. Um upptökustjórn og útsetningar sá Magnús Þór ásamt Jóni Ólafssyni. Um upptökur sáu Addi 800, Haffi Tempó og Baldvin AB Aalen. Addi 800, Jón Ólafsson og Magnús Þór sáu um hljóðblöndun. Upptökur og hljóðblöndun fóru fram í Sýrlandi, Hljóðrita og Eyranu. Steinsnar gefur út. MAGNÚS Þór Sigmundsson er hér á ferð með áður útgefin frumsamin lög í nýjum búningi, auk þess sem nokkur ný hafa fengið að slæðast með. Platan er öll mjög lágstemmd og einkennist af vönduðum og einföldum flutningi. Magnús tekur mörg af sínum vinsælustu lögum. Sem dæmi má nefna "Ísland er land þitt", "Álfar", "Ást við fyrstu sýn" og "Blue Jean Queen". Söngurinn er ekki það sem hlustendur eiga að venjast frá Magnúsi. Hann er djúpur og hljómar eins og söngur fullorðins manns sem hefur lifað og reynt ýmislegt. Hann er einlægur og ljúfsár og minnir stundum á Tom Waits. Textarnir fjalla um ástina og útsetningarnar henta viðfangsefninu afskaplega vel. Það er eins og ljóðin fái nýja merkingu. Gítarleikur Magnúsar er líka mjög fallegur. Lagið "Ást við fyrstu sýn" er gott dæmi um þetta, það er eins og það hafi alltaf átt að vera svona rólegt og einlægt. Honum tekst að snerta viðkvæma strengi á þessari plötu. Mér þykir það vera eitt af því stórkostlegasta sem tónlistarmaður getur gert - að vekja tilfinningar. Það eru viðbrigði að heyra "Ísland er land þitt" í þeirri útgáfu sem það kemur fyrir í hér. Lagið hljómar eins og draugur fyrri útgáfu en er alls ekki síðra, það fær djúpa og innilega merkingu á nýjan hátt. Helga Þórey Jónsdóttir https://www.mbl.is/greinasafn/grein/1057034/

     
Musicians
PortraitMagnús Þór Sigmundsson ,
album by
Album Tracks   
No Title Artist Composer Duration
1Hljóð Er NóttinMagnús Þór Sigmundsson
2ÁstMagnús Þór Sigmundsson
3SunshineMagnús Þór Sigmundsson
4Sú ást Er HeitMagnús Þór Sigmundsson
5Dag Sem Dimma NáttMagnús Þór Sigmundsson
6ÁlfarMagnús Þór Sigmundsson
7Þú átt Mig EinMagnús Þór Sigmundsson
8Jörðin Sem ég AnnMagnús Þór Sigmundsson
9Play MeMagnús Þór Sigmundsson
10Ást Við Fyrstu SýnMagnús Þór Sigmundsson
11AmazonMagnús Þór Sigmundsson
12Blue Jean QueenMagnús Þór Sigmundsson
13Húmar AðMagnús Þór Sigmundsson
14Ísland Er Land þittMagnús Þór Sigmundsson
15 ÓlýsanlegMagnús Þór Sigmundsson

30sec audio samples provided by

External Links
Discogs Logo Discogs  iTunes Logo iTunes  Spotify Logo Spotify

    
ArtistInfo App
ArtistInfo for iOS and ArtistInfo for Mac are presenting musicians, composers and producers that are envolved in the musical work that you are listening to in Apple Music, iTunes, or Spotify. Discover new music via the network among artists. Manage your favorite musicians and albums via iCloud and share recommendations with your friends via email, AirDrop, or Social Media.

App Store Logo     Mac App Store Logo

Acknowledgements
To all the music fans that are contributing on Discogs, MusicBrainz and Wikipedia. Thanks to Franz Flückiger for providing Storygram used to visualize band membership.
ArtistInfo for Mac, iPad, and iPhone
ArtistInfo App
Universal Link: https://music.metason.net/artistinfo?name=Magn%C3%BAs%20%C3%9E%C3%B3r%20Sigmundsson&title=Hlj%C3%B3%C3%B0%20Er%20N%C3%B3ttin
ArtistInfo Community
Most seen topics within ArtistInfo:

Top 10 Artists    Top 20 Albums
 
What others are currently looking for:

Recent Artists    Recent Albums

ArtistInfo Logo ArtistInfo by Metason © 2015-2020 Metason Logo