Pop, Folk and World
A.k.a. Melchior
Band from Iceland. Hljómsveitin Melchior hefur allt frá stofnun, 1973, flutt dæmigerða stofutónlist, frumsamið kammerpopp. Þótt tónlistin megi flokkast sem popp, hafa sígíld hljóðfæri, s.s. selló, óbó, fiðla og víóla leikið lykilhlutverk í útsetningum og rafmögnun tónlistarinnar hefur ætið verið mjög hófleg. Tónlist Melchiors hefur alltaf þótt vönduð og metnaðarfull og hefur sveitin mikið lagt upp úr útsetningum, þótt þær hafi á sér yfirbragð látleysis. – Meðlimir: Melchior skipa þeir Hilmar Oddsson (lög, textar, útsetningar, hljómborð, gítar og söngur), Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson (lög, útsetningar, gítar og söngur) og Karl Roth (lög, textar, útsetningar, gítar og söngur). Þá leika þeir Gunnar Hrafnsson á bassa og Kjartan Guðnason á slagverk. Söngkona er Kristín Jóhannsdóttir. Einnig hafa á ýmsum stigum leikið eða sungið í og með sveitinni Björgúlfur Egilsson (aðalstofnandi), Steingrímur Guðmundsson, Ólafur Flosason, Arnþór Jónsson, Jónas Þórir Jónasson, Rósa Gísladóttir, Eggert Þorleifsson, Helga Þórarinsdóttir, Ágústa Jónsdóttir, Asdís Valdemarsdóttir, Stefán S. Stefánsson, Áskell Másson, Már Elísson, Ari Hróðmarsson, Hera Hilmarsdóttir, Ragnhildur Gunnarsdóttir, Chrissie Thelma Guðmundsdóttir, Karl Olgeirsson, Örnólfur Kristjánsson, Eiríkur Örn Pálsson, Sigurður Halldórsson, Gunnar Ormslev, Margrét Kristjánsdóttir, Helga Möller o.fl.
Title | Artist | Year | Type |
---|---|---|---|
<1980 | Melchior | 2010 | Album |
Melchior | Melchior | 2009 | Album |
Balapopp | Melchior | 1979 | Album |
Silfurgrænt Ilmvatn | Melchior | 1978 | Album |
Gína | Melchior | Single |