Compil. IS 1973 on SG-Hljómplötur label
Pop (Vocal)
Rúnar Gunnarsson vakti á sér athygli kornungur fyrir sinn sérstœða söngstíil í hljómsveitinni Dátum eins og heyra má í lögunum á fyrri plötu Dáta Leyndarmál og Kling-Klang. Á síðari plötu Dáta sýndi hann á sér alveg nýja hlið, þar sem hann kom fram sem ferskur og fjölhœfur lagasmiður með lagið Gvendur á eyrinni þar fremst, sem náði miklum vinsœldum. Einnig var hann nú orðinn sólógítarleikari með Dátum á þessari plötu. Önnur lög hans á þeirri plötu voru Fyrir þig, Konur og Hvers vegna. Með hljómsveit Ólafs Gauks söng Rúnar fyrst og fremst. Er söngur hans í lögum Oddgeirs Kristjánssonar sérlega skemmtilegur þó einhver hefði haldið, að flutningur á sjómannalögum eins og Ship-O-Hoj œtti ekki við Rúnar. En í hljómsveit Ólafs Gauks hélt Rúnar áfram að semja og þar kynnti hann og gerði vinsœlt lag sitt Það er svo undarlegt með unga menn. — Frá því að Rúnar Gunnarsson féll frá í blóma lifsins hafa hinir mörgu aðdáendur hans og vinir um land allt stöðugt spurt eftir eldri plötum hans, sem nú eru ekki lengur til. Því hafa SG-hljómplötur dregið saman á eina plötu það sem hann skyldi eftir sig hljóðritað þar. Tvö lög af fyrri fjögurra laga plötu Dáta. Öll lögin af síðari fjögurra laga plötu Dáta og síðan sex lög af þremur plötum, sem Rúnar gerði með hljómsveit Ólafs Gauks. Gæsalappir — Svavar Gests
Rúnar Gunnarsson , album by |
No | Title | Artist | Composer | Duration |
---|---|---|---|---|
1 | Gvendur Á Eyrinni | Rúnar Gunnarsson | ||
2 | Fyrir Þig | Rúnar Gunnarsson | ||
3 | Konur | Rúnar Gunnarsson | ||
4 | Villtir Strengir | Rúnar Gunnarsson | ||
5 | Kling-Klang | Rúnar Gunnarsson | ||
6 | Fáð'Ér Sykurmola | Rúnar Gunnarsson | ||
7 | Það Er Svo Undarlegt Með Unga Menn | Rúnar Gunnarsson | ||
8 | Leyndarmál | Rúnar Gunnarsson | ||
9 | Hvers Vegna | Rúnar Gunnarsson | ||
10 | Ship-O-Hoj | Rúnar Gunnarsson | ||
11 | Konungur Í Kína | Rúnar Gunnarsson | ||
12 | Blítt Og Létt | Rúnar Gunnarsson |