ArtistInfo Logo  ArtistInfo

Album Cover
Ragnar Bjarnason og Þuríður Sigurðardóttir
Lög Jónatans Ólafssonar

Album IS 1976 on SG-Hljómplötur label
Pop (Ballad)

Jónatan Ólafsson píanóleikari og tónskáld er landskunnur hljómlistarmaður. Hann lék í árafjölda á veitingahúsum í Reykjavík og eins var hann um skeið á Siglufirði. Oftast nær stjórnaði hann eigin hljómsveit. Hin síðari ár hafa lög Jónatans hljómað í óskalagaþáttum Ríkisútvarpsins og verið flutt á skemmtistöðum um land allt. Ber þar hæst lagið Landleguvalsinn, sem áreiðanlega er eitt allra bezta lag af því tagi, sem gert hefur verið hér á landi. Þá gleymist ekki lag hans Í landhelginni, sem hann gerði þegar Íslendingar færðu út í tólf mílur. Hver man ekki eftir upphafsorðum ljóðsins; ,,Þau eru svo eftirsótt Íslandsmið ...". Ljóð við þetta lag gerði Númi Þorbergs og undrar því engan þó að þeir félagar settust niður á nýjan leik, þegar undirbúningur að plötuútgáfu þessari hófst og gerðu lag um Þorskastríðið. sem er afstaðið þegar þetta er ritað. Lagið verður skemmtileg heimild um þá erfiðu baráttu, því texti Núma er hnyttinn eins og við var að búast og lag Jónatans mjög gott. Á undan og eftir laginu er smátillegg frá samtölum enskra togaramanna við freygátu. Jónatan Ólafsson fór ungur að gera lög og er að finna eitt elzta lag hans á þessari plötu, Kvöldkyrrð, frá því um 1948 og síðan lög hans allt fram til þessa dags, en mörg þeirra hafa hlotið verðlaun, ýmist í danslagakeppni SKT eða FlD. en þær stóðu í blóma á árunum 1950-60. Gamall vinur Jónatans. Númi Þorbergs, hefur gert flest ljóðin við lög Jónatans, og á hann helming ljóðanna á þessari plötu. Þá hefur samstarf Jónatans og frænku hans Fríðu Sæmundsdóttur verið þó nokkuð, en hér eru tvö ljóð eftir hana. Ragnar Bjarnason og Þuríður Sigurðardóttir, bróðurdóttir Jónatans, syngja öll lögin, ýmist saman eða sitt í hvoru lagi. Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar annast undirleik ásamt nokkrum viðbótarmönnum, flestum úr Sinfóniuhljómsveit Íslands, en Grettir Björnsson leikur á hina ómissandi harmoniku af sinni alkunnu smekkvísi í nokkrum lögum. Það er SG-hljómplötum sérstakt ánægjuefni að gefa út þessi ágætu lög Jónatans Ólafssonar. — Svavar Gests

     
Musicians
PortraitRagnar Bjarnason , *1934
vocal, album by
PortraitÞuríður Sigurðardóttir voc,
vocal, album by
Album Tracks
No Title Artist Composer Duration
1ÞorskastríðiðRagnar Bjarnason og Þuríður Sigurðardóttir2:55
2Óskir RætastRagnar Bjarnason og Þuríður Sigurðardóttir3:30
3Svala NóttRagnar Bjarnason og Þuríður Sigurðardóttir2:25
4Laus Og LiðugurRagnar Bjarnason og Þuríður Sigurðardóttir2:10
5LoðnuvalsinnRagnar Bjarnason og Þuríður Sigurðardóttir1:55
6Rökkvar Í RunnumRagnar Bjarnason og Þuríður Sigurðardóttir3:25
7Myndin Af ÞérRagnar Bjarnason og Þuríður Sigurðardóttir2:15
8Þú Kvaddir MigRagnar Bjarnason og Þuríður Sigurðardóttir3:05
9SkíðavalsinnRagnar Bjarnason og Þuríður Sigurðardóttir2:20
10KvöldkyrrðRagnar Bjarnason og Þuríður Sigurðardóttir2:40
11Blár Varstu SærRagnar Bjarnason og Þuríður Sigurðardóttir3:40
12LandleguvalsinnRagnar Bjarnason og Þuríður Sigurðardóttir2:10
External Links
Discogs Logo Discogs
ArtistInfo App
ArtistInfo for iOS and ArtistInfo for Mac are presenting musicians, composers and producers that are envolved in the musical work that you are listening to in Apple Music, iTunes, or Spotify. Discover new music via the network among artists. Manage your favorite musicians and albums via iCloud and share recommendations with your friends via email, AirDrop, or Social Media.

App Store Logo     Mac App Store Logo

Acknowledgements
To all the music fans that are contributing on Discogs, MusicBrainz and Wikipedia. Thanks to Franz Flückiger for providing Storygram used to visualize band membership.
ArtistInfo for Mac, iPad, and iPhone
ArtistInfo App
Universal Link: https://music.metason.net/artistinfo?name=Ragnar%20Bjarnason%20og%20%C3%9Eur%C3%AD%C3%B0ur%20Sigur%C3%B0ard%C3%B3ttir&title=L%C3%B6g%20J%C3%B3natans%20%C3%93lafssonar
ArtistInfo Community
Most seen topics within ArtistInfo:

Top 10 Artists    Top 20 Albums
 
What others are currently looking for:

Recent Artists    Recent Albums

ArtistInfo Logo ArtistInfo by Metason © 2015-2020 Metason Logo