Band,
Pop
Rondo Trio. Icelandic. Rondó var hljómsveit sem starfaði í fimmtán ár og lagði alltaf áherslu á að leika gömlu dansana þrátt fyrir ýmsa strauma og stefnur sem sjötti og sjöundi áratugurinn leiddi af sér í tónlistinni. Meðlimir Rondó voru upphaflega fjórir og því gekk sveitin fyrst um sinn undir nafninu Rondó kvartett. Sveitin lék fyrst og fremst í Kópavogi framan af og er freistandi að ætla að hún hafi átt þar sína heimahaga. Á þessum tíma tíðkaðist ekki að söngvarar væru hluti af hljómsveitum heldur lausráðnir, jafnvel kvöld og kvöld í senn, og voru því ýmsir söngvarar sem komu við sögu hennar, stundum tveir samtímis. Þeirra á meðal var t.d. Garðar Guðmundsson sem söng með þeim 1959. Ekki liggja fyrir upplýsingar um hverjir skipuðu Rondó í upphafi en Matthías Karelsson harmonikkuleikari var allan tímann í sveitinni. Á sjöunda áratugnum var Rondó orðin að tríói og 1964 voru auk Matthíasar, Gunnar Bernburg bassaleikari og Guðmundur Steinsson trommuleikari í sveitinni. Sigurður Þórisson var orðinn trymbill sveitarinnar 1966 en ekki er ljóst hvort hann tók við af Guðmundi. Ári síðar var Einar Jónsson trommuleikari Rondó tríós. Það sama ár var Arthur Moon bassaleikari sveitarinnar og þegar hér var komið sögu virðast lausráðnir söngvarar hafa verið úr sögunni, þeir félagar sungu sjálfir.
Title | Artist | Year | Type |
---|---|---|---|
Rondo Trio | Rondo Trio | 1969 | Single |