Sigrún Vala er fædd 1989 í Vestmannaeyjum og bjó þar til 6 ára aldurs. Síðustu árin hefur hún búið á Selfossi og skipar sér þar með í hóp fjölmargra tónlistarmanna sem koma þaðan. Sigrún Vala hefur sungið síðan hún man eftir sér og hefur komið fram við ýmis tækifæri síðan hún var 12 ára. Hún hefur því góða reynslu í íslensku tónlistarlífi þrátt fyrir ungan aldur.