Sigurður Breiðfjörð (4 March 1798 – 1846) was an Icelandic poet. He learned cooperage for four years in Copenhagen and worked as a cooper in Iceland and Greenland. He was a prolific and popular traditional poet, known for his rímur cycles. Núma rímur is his best-known work. --- Sigurður Breiðfjörð (Eiríksson) (4. mars 1798 – 1846) var fæddur í Rifgirðingum á Breiðafirði. Sigurður fór ungur til Kaupmannahafnar og nam þar beykisiðn. Þar kynntist hann einnig dönskum skáldskap og hreifst einkum af ljóðum skáldsins Jens Baggesen. Eftir að Sigurður kom heim fékkst hann við verslun og beykisiðn. Hann fór síðan aftur til Kaupmannahafnar og hugðist nema þar lög en úr því varð lítið og fékk hann þá vinnu hjá einokunarverslun Dana á Grænlandi og var þar í þrjú ár. Á þeim árum orti hann ýmislegt, meðal annars Númarímur sem jafnan eru taldar bestar rímna hans. Eftir veru sína á Grænlandi dvaldist hann á Íslandi til æviloka. Sigurður orti geysimikið, einkum rímur, og er trúlega þekktasta rímnaskáld sem uppi hefur verið. Sigurður hvílir í kirkjugarðinum við Suðurgötu í Reykjavík.