ArtistInfo Logo  ArtistInfo

Album Cover
Vilhjálmur Vilhjálmsson Og Elly Vilhjalms
Syngja Lög Eftir "Tólfta September"

Album IS 1970 on SG-Hljómplötur label
Pop (Vocal)

Þegar templarar fóru af stað með danslagakeppni í Góðtemplarahúsinu fyrir tœpum tuttugu árum hefur það sennilega verið gert í tvennum tilgangi; til að auka aðsóknina að dansleikjum í Gúttó og til að koma íslenzkum lögum á framfœri. En á þessum árum, var vegur íslenzkra danslaga ekki meiri en það, að það komu aðeins fram 1—2 íslenzk lög á ári á móti hinum mörgu hundruðum erlendra laga, sem voru flutt á skemmtistöðum og í útvarpi. Þetta tókst hjá templurum. Aðsóknin jókst að dansleikjum í Gúttó og fyrir tilstilli þeirra komu fram mörg lög, sem sígild hafa orðið í hópi íslenzkra dægurlaga. Freymóður Jóhannsson stóð fyrir danslagakeppni SKT þessi ár, sem hún stóð yfir. Fylgdist hann með öllu af lífi og sál. Mér er það minnisstætt, að hann mœtti á flestum œfingum hljómsveitarinnar í Gúttó, til að fylgjast með þvi að þessi valsinn vœri ekki of hœgur, eða hinn tangóinn of hraður. Það var á öðru, frekar en þriðja ári keppninnar, að þátttaka var einhverra hluta vegna minni, en búizt hafði verið við. Þá vantaði tvö eða þrjú lög svo að lögleg keppni gœti farið fram. Freymóður skauzt þá út í bœ, sagðist vita um lög, sem nota mœtti til uppfyllingar. Höfundur þessara laga var skráður „Tólfti september" og lögin, sem gripið var til á síðustu stundu náðu svo sannarlega eyrum fólksins. Þau voru gœdd þeim nauðsynlega einfaldleika, sem verður að vera fyrir hendi, svo að ljúf laglína eða fallegt ljóð verði á hvers manns vorum á svipstundu. Það kom í ljós þegar verðlaunum var úthlutað, að Freymóður varð að taka á móti verðlaunum „Tólfta september" því lögin voru eftir hann. Hann hafði einfaldlega tekið sér fœðingardag sinn sem höfundarnafn. Á þessum árum samdi Freymóður mikinn fjölda laga, mörg þeirra hlutu verðlaun og voru síðan sungin landshornanna á milli þegar þau voru flutt í úrvarpi. Freymóður Jóhannsson á mikinn heiður skilið fyrir allt það, sem hann hefur gert fyrir íslenzka dans- og dægurtónlist. Fyrst og fremst fyrir lög sín og ljóð og síðan fyrir brautryðjendastarf sitt í sambandi við danslagakeppni SKT og ekki hvað sízt fyrir að halda merki íslenzkrar dœgurlagatónlistar á lofti æ síðan. Ég er ekki í minnsta vafa um, að það er að all verulegu leyti þessu starfi hans að þakka, að síðasta hálfan annan áratuginn hafa Íslendingar tekið góð íslenzk lög og ljóð langt fram yfir það sem erlent er. Þessvegna er mér það sérstök ánægja, að fœra Freymóði Jóhannssyni þessa hljómplötu á 75 ára afmœlisdegi hans, tólfta september 1970. Á plötunni eru öll hans þekktustu lög ásamt þremur öðrum, sem ekki hafa áður komið á hljómplötu. Öll eru ljóðin eftir Freymóð, að undanskildu Þú ert vagga mín, haf sem er eftir Reinhardt Reinhardtsson. Flytjendur eru systkinin Vilhjálmur og Elly Vilhjálms, en útsetjari og hljómsveitarstjóri Jón Sigurðsson. Hefur þeim þremur ekki tekizt síður upp á þessari plötu, en hinni fyrri, sem þau unnu að saman fyrr á þessu ári.

     
Musicians
PortraitVilhjálmur Vilhjálmsson voc,
album by, soloist
PortraitElly Vilhjalms voc, 1935-1995
album by, soloist
Album Tracks
No Title Artist Composer Duration
1Draumur FangansVilhjálmur Vilhjálmsson Og Elly Vilhjalms
2Í Faðmi ÞérVilhjálmur Vilhjálmsson Og Elly Vilhjalms
3HeimþráVilhjálmur Vilhjálmsson Og Elly Vilhjalms
4SumarleyfiðVilhjálmur Vilhjálmsson Og Elly Vilhjalms
5Þú Ert Vagga Mín, HafVilhjálmur Vilhjálmsson Og Elly Vilhjalms
6Bergmál Hins LiðnaVilhjálmur Vilhjálmsson Og Elly Vilhjalms
7HallóVilhjálmur Vilhjálmsson Og Elly Vilhjalms
8Hér Sátum Við BæðiVilhjálmur Vilhjálmsson Og Elly Vilhjalms
9FrostrósirVilhjálmur Vilhjálmsson Og Elly Vilhjalms
10Blikandi HafVilhjálmur Vilhjálmsson Og Elly Vilhjalms
11Litla Stúlkan Við HliðiðVilhjálmur Vilhjálmsson Og Elly Vilhjalms
12Litli TónlistarmaðurinnVilhjálmur Vilhjálmsson Og Elly Vilhjalms
External Links
Discogs Logo Discogs
ArtistInfo App
ArtistInfo for iOS and ArtistInfo for Mac are presenting musicians, composers and producers that are envolved in the musical work that you are listening to in Apple Music, iTunes, or Spotify. Discover new music via the network among artists. Manage your favorite musicians and albums via iCloud and share recommendations with your friends via email, AirDrop, or Social Media.

App Store Logo     Mac App Store Logo

Acknowledgements
To all the music fans that are contributing on Discogs, MusicBrainz and Wikipedia. Thanks to Franz Flückiger for providing Storygram used to visualize band membership.
ArtistInfo for Mac, iPad, and iPhone
ArtistInfo App
Universal Link: https://music.metason.net/artistinfo?name=Vilhj%C3%A1lmur%20Vilhj%C3%A1lmsson%20Og%20Elly%20Vilhjalms&title=Syngja%20L%C3%B6g%20Eftir%20%26%23x22%3BT%C3%B3lfta%20September%26%23x22%3B
ArtistInfo Community
Most seen topics within ArtistInfo:

Top 10 Artists    Top 20 Albums
 
What others are currently looking for:

Recent Artists    Recent Albums

ArtistInfo Logo ArtistInfo by Metason © 2015-2020 Metason Logo